22. — 25. maí 2026
Patreksfjörður

Kvik­mynda­safnið: Magnús Jóhannsson

sérvið­burður

22. maí
19:30

Magnús Jóhannsson var brautryðjandi í íslenskri kvikmyndagerð. Að mennt var hann útvarpsvirkjameistari og kallaði sig gjarnan kvikmyndaamatör en samt varð hann fyrstur Íslendinga til að fá kvikmynd eftir sig sýnda á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hann hafði brennandi áhuga á tækninýjungum, prófaði sig áfram með stílfærðar upptökur og tók upp nokkrar dýralífsmyndir á tímum þegar slíkt var afar krefjandi. Magnús rak sjálfstætt viðgerðar-, innflutnings- og hljóðsetningarfyrirtæki og var jafnframt frumkvöðull í varðveislu kvikmynda á Íslandi. Á sýningunni verður farið yfir ferilinn og sýndar nokkrar mynda hans. Gunnþóra Halldórsdóttir frá Kvikmyndasafni Íslands leiðir sýninguna.

Lengd: 45 mín

Styrktaraðilar

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo