17. — 20. maí 2024
Patreksfjörður

festival parade

Skjaldborgarhátíðin

Skjaldborg sýnir heimildamyndir sem annars kæmu varla fyrir augu almennings og ber jafna virðingu fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og fokdýra. Efnistök heimildamyndanna sem hafa verið á dagskrá hátíðarinnar í gegn um árin hafa verið fjölbreytt en þær hafa verið allt frá örstuttum myndum upp í myndir í fullri lengd.

Dómnefndina skipa Anton Máni Svansson, kvikmyndaframleiðandi, Margrét Bjarnadóttir, danshöfundur og myndlistakona og Jón Bjarki Magnússon, heimildamyndahöfundur og mannfræðingur.

Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar sem sýndar eru í bíóinu Skjaldborg sem staðsett er í hjarta bæjarins.

Passi á hátíðina veitir aðgang að sjávarréttaveislu, plokkfiskboði kvenfélagsins, dansiballi og aðgang í sundlaugina.

Hátíðarpassar eru seldir á tix.is og í Skjaldborgarbíó á meðan hátíðinni stendur. Verðið er kr. 10.000.-

Stök verð:

Plokkfiskur kr. 2.800.-

Fiskiveisla kr. 3800.-

Lokapartý kr. 2.500.-

Aðgangur í sundlaugina kr. 1.200.-

sponsors

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo