
Miðasala
Hátíðarpassi veitir aðgang að
- allri dagskrá hátíðarinnar
- sjávarréttaveislu á sunnudagskvöldinu (kostar sér 4000kr)
- plokkfiskboði kvenfélagsins á laugardagskvöldinu (kostar sér 3000kr)
- partýi og bingói á laugardagskvöldinu (aðeins fyrir handhafa passa)
- lokaballi, verðlaunaafhendingu og limbókeppni hátíðarinnar (kostar sér 3500 kr)
- sundlauginni alla helgina (hver miði 1290kr)
- tjaldstæðinu alla helgina (kostar 3888kr fyrir 3 nætur)
Ferðalagið / Gisting
Við hvetjum alla okkar gesti til að plana frekara ferðalag um Vestfirði fyrir og/eða eftir hátíð en ekki þarf að fara langt frá Patreksfirði til að bera augum margar af helstu náttúruperlum Íslands svo sem Dynjanda, Látrabjarg og Rauðasand.
Flugfélagið Norlandair flýgur frá Reykjavík til Bíldudals og þaðan fer flugrúta til Patreksfjarðar en þar er einnig hægt að panta bílaleigubíla frá nokkrum bílaleigum. Flugferðin sjálf tekur milli 40-50 mínútur og svo er 30 km akstur frá Bíldudal yfir á Patreksfjörð um heiðina Hálfdán.
Akstursleiðin (Sjá á korti) frá Reykjavík til Patreksfjarðar hefur styst og batnað ár frá ári síðan hátíðin var stofnuð árið 2007. Vegalengdin í dag er 389 km (þar af um 9 km af malarköflum) þar sem ekið er um Brattabrekku, Svínadal, Barðastrandarsýslu og að lokum yfir Kleifaheiði til að komast í mynni hins fallega Patreksfjarðar. Aksturstími er um 5 klst. en þá er ekki miðað við mörg stopp á leiðinni. Hinsvegar ef ferðalangar fara sér hægar geta þeir verðlaunað sig með heimsókn í náttúrupotta, á sögustaði og notið náttúrufegurðar á leiðinni.
Einnig er hægt að keyra leiðina að hluta og sigla með ferjunni Baldri frá Stykkishólmi yfir hinn fagra Breiðafjörð yfir á Brjánslæk en þaðan er svo um 40 mín akstur til Patreksfjarðar (Sjá á korti). Hægt er að fara úr ferjunni í Flatey og eiga þar dagsstund áður en haldið er áfram ferðalaginu. Baldur siglir tvisvar sinnum á sólarhring frá Stykkishólmi og vissara er að lesa tímatöfluna á heimasíðu Ferjuleiða sem og að bóka pláss fyrir ökutæki fyrirfram. Ferðalangar verða að vera komnir niður á bryggju í Stykkishólmi 30 mínútum fyrir brottför þar sem það getur tekið starfsmenn Ferjuleiða drjúgan tíma að púsla öllum faratækjum inn í skrokk Baldurs. Hægt er að njóta útsýnisins og veitinga meðan á siglingu stendur.
Á heimasíðu markaðsstofu Vestfjarða er að finna allar helstu upplýsingar um áningarstaði, veitingastaði, ferðaþjónustuaðila og gistimöguleika en einnig má skrifa okkur á tölvupóstfangið travel@skjaldborg.is og við munum gera okkar besta að aðstoða gesti við að finna gistingu.
GO CAMPERS tilboð
Miðahafar geta sent tölvupóst á travel@skjaldborg.is og fengið afsláttarkóða sem gildir á bókunarsíðu Go Campers á 2 stærðir af bílum, gildir dagsetningarnar 6.-9.júní (umsemjanlegt ef vilji er til þess að leggja fyrr af stað eða skila aðeins seinna)
GO SMART - Tveggja manna bíll, listaverð 49þús kr. Tilboð fyrir Skjaldborg 39þús kr.
GO BIG - Fimm manna bíll, listaverð 147þús kr. Tilboð fyrir skjaldborg 119þús kr.
Sjá bíla hér