Heiðursgestaspjall: Niels Pagh Andersen
Heiðursgestaspjall
Niels Pagh Andersen er einn áhrifamesti klippari í Skandinavíu samtímans enda hafa verk hans verið tilnefnd til og unnið fjölda verðlauna um heim allan. Hann hóf feril sinn í kvikmyndum aðeins 16 ára gamall og klippti sína fyrstu mynd árið 1979. Hann hefur klippt yfir 250 kvikmyndir af ólíkum toga, flestar þeirra heimildamyndir. Samhliða starfi sínu sem klippari sinnir hann kennslu og flytur fyrirlestra í kvikmyndaskólum og háskólum um heim allan. Niels er einnig eftirsóttur sem dramatúrg og ráðgjafi. Árið 2005 hlaut hann Roos Pris dönsku kvikmyndamiðstöðvarinnar fyrir einstakt framlag til danskrar heimildamyndagerðar. Á meðal þekktustu verka hans eru The Act of Killing og The Look of Silence eftir Joshua Oppenheimer, The 3 Rooms of Melancholia eftir Pirjo Honkasalo, Palme eftir Kristina Linström og Maud Nylander auk Human Flow eftir kínverskalistamanninn Ai Wei-wei en allt eru þetta margverðlaunaðar heimildamyndir.















