
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstjóri og framleiðandi hefur sérhæft sig í gerð heimildamynda og heimildaþátta. Hún er einna best þekkt fyrir heimildaþættina Svona fólk um jafnréttisbaráttu homma og lesbía á Íslandi. Nú nýlega hefur kvikmyndin The Day Iceland Stood Still um kvennafrídaginn 1975 verið sýnd í öllum heimsálfum og hlotið fjölda verðauna. Hrafnhildur hlaut Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu 2024 fyrir framlag sitt til heimildamyndagerðar og kvikmyndir sínar sem varða jafnrétti.
Kati Juurus
Kati Juurus er heimildamyndagerðarkona með aðsetur í Helsinki. Hún var áður listrænn stjórnandi heimildamyndahátíðarinnar DocPoint Helsinki og hefur einnig unnið sem framleiðandi heimildamynda og framkvæmdastjóri fyrir finnska ríkissjónvarpið Yle. Hún hefur einnig unnið sem rannsóknablaðamaður og sem upplýsingafulltrúi fyrir UNICEF í Kathmandu, Nepal.
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir hefur starfað sem forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands frá árinu 2019. Þar hefur hún leitt uppbyggingu á starfsemi safnsins, með áherslu á varðveislu, stafvæðingu og miðlun íslensks kvikmyndaarfs. Áður starfaði hún um árabil sem forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands, þar sem hún stýrði umfangsmiklum breytingum á stafrænni þjónustu og aðgengi að menningar- og fræðsluefni. Þóra hefur tekið virkan þátt í menningarstarfi hérlendis og erlendis og hefur langa reynslu af dómnefndarstörfum og ráðstefnustjórnun, þar á meðal fyrir RIFF og kvikmyndahátíðina í Tromsö. Þá hefur hún einnig setið í ýmsum dómnefndum á sviði bókmennta og menningar.