22. — 25. maí 2026
Patreksfjörður

Heið­urs­gesta­spjall með José Luis Guerin

Heidurs­gestur

14. maí
20:15

José Luis Guerin er einn af forgöngumönnum sjálfstæðrar kvikmyndagerðar, ekki bara á Spáni heldur einnig í Evrópu. Ljóðræna og afslappaður stíll hafa einkennt verk hans í gegnum tíðina en eitt af höfundareinkennum hans er að dansa á jaðri heimildamynda og leikinna mynda. Guerin er hvað þekktastur fyrir En Construcción sem vann til fjölda verðlauna á Spáni. Myndir hans hafa verið sýndar á kvikmyndahátíðum um allan heim og árið 2007 var mynd hans In The City of Sylvia frumsýnd í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum. Einnig hafa myndir hans ferðast á milli listasafna og viðburða eins og Pompidou safnsins og Feneyjartvíæringsins. Seinustu ár hefur Guerin unnið fyrir utan hinn hefðbundna kvikmyndaiðnað, oft einn á ferð með hljóðmanni sínum.

Styrktaraðilar

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo