22. — 25. maí 2026
Patreksfjörður

Heið­urs­gesta­spjall: Albert Maysles

Heið­urs­gesta­spjall

9. maí
22:00

Albert Maysles er einn af kunnustu heimildamyndagerðarmönnum samtímans og hefur ásamt bróður sínum og helsta samstarfsmanni David Maysles haft gríðarlega áhrif í faginu. Maysles-bræður urðu snemma merkisberar "Cinema verite" heimildamyndagerðar en þá nálgast kvikmyndagerðarmaðurinn viðfangsefni sitt án nokkurs handrits og hefur af því sem allra minnst afskipti - stundum kallað "fluga á vegg" kvikmyndagerð.

Fyrir utan frumlega nálgun við viðfangsefni sín urðu Maysles bræður fljótt þekktir fyrir óvenjulegar svipmyndir af mörgum frægustu einstaklingum 20. aldarinnar. Má þar nefna Marlon Brando, Truman Capote, Orson Welles, Bítlana og Rolling Stones. Áralangt samband Alberts og Davids við listamennina Christo og Jeanne-Claude tengslum við myndir um óhemju umfangsmikil útilistaverk þeirra skilaði þeim bræðrum óskarsverðlaunatilnefningu árið 1974.

Þrjár þekktustu heimildamyndir Maysies-bræðra verða sýndar á Skjaldborg. Þær eru Salesman (1968), Gimme Shelter (1970) og Grey Gardens (1976). Að auki verður nýjasta mynd Alberts, The Gates (2007) sýnd a hátíðinni. Albert Maysles mun sjálfur verða viðstaddur sýningu á einni af myndum sinum auk þess að sitja fyrir svörum og segja ítarlega frá glæsilegum ferli.

Styrktaraðilar

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo