22. — 25. maí 2026
Patreksfjörður

Heið­urs­gestap­all­borð: Heims­skautsraddir á jaðr­inum

Heið­urs­gesta­spjall

24. maí
17:00

Heiðursgestadagskrá hátíðarinnar samanstendur af kvikmyndagerðarfólki frá heimskautsnágrannasvæðum okkar á Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héruðum Norður-Skandinavíu en þemastefið í þeirri dagskrá er hugtakið frásagnarfullveldi (narrative sovereignty).

Arina Kleist er upprennandi kvikmyndaleikstjóri af Inuk-ættbálkinum búsett í Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Fyrsta stuttmynd hennar, Ivikkisartoq Kingulleq, vann verðlaun sem besta stuttmynd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Nuuk árið 2024. Nýjasta mynd hennar Tamatta Ataqatigiippugut (We Are All Connected) var frumsýnd á CPH:DOX í ár.

Maria Tórgarð er frá Færeyjum en hún útskrifaðist sem kvikmyndaleikstjóri árið 2025 úr Listaháskóla Stokkhólms. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir myndir sínar, þar á meðal fyrir heimildamyndina Skál frá árinu 2021 og Mother Creature sem var frumsýnd á CPH:DOX í ár en í henni blandar Maria saman frásagnar- og heimildamyndaforminu. 

Johannes Vang er samísk-kvenskur leikstjóri og framleiðandi frá Ráisa – Nordreisa, við strönd Sápmi. Sem stofnandi Aurinko Film og meðeigandi Rett Vest, hefur Johannes notað kvikmyndagerð til þess að fagna og varpa ljósi á hinn ríka frásagnararf, menningu og sjálfsmynd hins samíska, kvenska og norður-norska samfélags.

Spyrill pallborðsins verður Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor og aðjúnkt á Hugvísindasviði Háskóla Íslands sem rannsakar meðal annars bókmenntir og norræna nýlendustefnu á 19. og 20. öld.

Styrktaraðilar

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo