
Bransadagskrá: Erindi frá fulltrúum CPH:DOX & Nordisk Panorama
í brennidepli
Cassandre Lyotier og Saga Ísold Eysteinsdóttir munu kynna fjármögnunar- og samframleiðslukynningarvettvanga CPH:DOX og Nordisk Panorama, þar sem heimildaverkefni eru kynnt fyrir fjárfestum og fagfólki í greininni, tengsl mynduð og verkefni þróuð áfram. Í kynningunni verður farið yfir áherslur beggja hátíða við val á verkefnum og hvaða tækifæri felist í því að fá verkefni kynnt á hverjum vettvangi fyrir sig. Þá verður farið yfir helstu atriði umsóknarferlanna og hagnýtar upplýsingar veittar um hvað vert er að hafa í huga fyrir umsækjendur.
CPH:DOX er alþjóðleg heimildamyndahátíð sem laðar að sér um 150.000 gesti og yfir 2.000 fagaðila sem taka þátt í CPH:INDUSTRY. Hátíðin fer fram í Kaupmannahöfn í mars ár hvert. Nordisk Panorama sýnir það fremsta í norrænum stuttmyndum og heimildamyndum í fullri lengd í Malmö í september ár hvert.

Cassandre Lyotier

Saga Ísold Eysteinsdóttir















