
Nelly & Nadine
Magnus Gertten
3. júní
20:15
Leikstjóri
Magnus Gertten
Nelly & Nadine er mynd eftir heiðursgest Skjaldborgar 2022, sænska heimildamyndahöfundinn Magnus Gertten.
Nelly & Nadine er ástarsaga tveggja kvenna sem felldu hugi saman á aðfangadag árið 1944 í Ravensbrück útrýmingarbúðunum. Þrátt fyrir aðskilnað síðustu mánuði seinni heimsstyrjaldarinnar náðu þær saman á ný og vörðu ævikvöldinu saman. Í verkinu afhjúpar dótturdóttir Nelly hina ótrúlegu og ósögðu sögu ástkvennanna sem nær yfir heimshöfin og samfélagsleg norm þess tíma.