
Grey Gardens
Muffie Meyer, David Maysles, Ellen Giffard og Albert Maysles
Leikstjóri
Muffie Meyer, David Maysles, Ellen Giffard og Albert Maysles
Tegund
Heiðursgestur
Framleiðandi
David Maysles og Albert Maysles
Kvikmyndataka
David Maysles og Albert Maysles
Klipping
Ellen Giffard, Susan Froemke og Muffie Meyer
Hljóð
Lee Dichter
Lengd
95
Frumsýningarár
1975
Í myndinni kynnumst við mæðgunum Edith Bouvier Beale og „Litlu Edie". Þessar kostulegu, fyrrum aðalstigndu mæðgur hafa gerst útlagar úr heimi hinna frægu og ríku og búa í samfélagslegri einangrun á niðurníddu fjölskyldusetri. Þetta nærgöngula og á stundum óþægilega portrett hefur auk þess að skapa sér mikilvægan sess í sögu heimildarmynda einnig gert „Litlu Edie" að nokkurs konar neðanjarðar tískutákni og lifsspekingi.















