
Grandrokk
Þorfinnur Guðnason
Leikstjóri
Þorfinnur Guðnason
Tegund
Heiðursgestur
Frumsýningarár
2004
Grandrokk er einhver blautasta heimildamynd Íslandssögunnar. Hún gerist á árunum 1998-1999 þegar kráin Grand Rokk við Klapparstíg flytur búferlum yfir á Smiðjustíg. En Grand Rokk var – og er kannski enn – ein mesta menningarbúllan í miðbæ Reykjavíkur. Þangað eru allir velkomnir og knæpuna sækja menn úr öllum stigum samfélagsins.
Sumir segja að myndin fjalli töluvert um Hrafn Jökulsson og Skákfélag Grandrokks sem stofnað var í einhverju fyllerísrugli á barnum - og endaði sem margfaldur Íslandsmeistari. Hið rétta er að Hrafn leiðir söguna áfram, eftir bestu getu, ýmist allsgáður eða allur á ská og skjön – en aldrei leiðinlegur og alltaf með eitthvað á prjónunum.















