22. — 25. maí 2026
Patreksfjörður

Ég er einfaldur maður ég heiti Gleb

Ingvar Ágúst Þórisson

Leikstjóri
Ingvar Ágúst Þórisson
Tegund
Verk í vinnslu
Framleiðandi
Jón Þórisson & Ingvar Ágúst Þórisson
Meðframleiðandi
Áslaug Thorlacius
Meðframleiðandi
Finnur Arnar Arnarsson
Handrit
Jón Þórisson
Frumsýningarár
2019

Rússneskur maður, Gleb Terekhin, skrifar litrík bréf til fjölmiðla og óskar eftir aðstoð við að finna sér eiginkonu og vinnu á Íslandi. Tíu árum síðar rekst Kristján Guðmundsson listamaður á bréfin og finnur í þeim samsvörun við lífsviðhorf sín og félaga sinna í félagi Hreiðars heimska og ákveður að bjóða Gleb til Íslands.
Gestgjafar Gleb er hópur listarmanna sem hrífst af lífssýn sem tíunduð er í Hreiðars þætti heimska, stuttri sögu sem telst til Íslendingaþátta, en þar er greint frá ævi Hreiðars, manns sem við fyrstu kynni virðist vera heimskur en við nánari kynni er ef til vill klókari og með skýrari sýn á heiminn en margir samferðarmenn hans. Þessir listamenn bundust óformlegum samtökum sem þeir kölluðu félag Hreiðars heimska. Upphafsmennirnir voru Birgir Andrésson og Kristján Guðmundsson. Formaður félagsins í dag er listarkonan Rúna Þorkelsdóttir sem búsett er í Amsterdam.
Þetta eru óformleg samtök sem eru hvergi á skrá og félagatal er ekki til.

Styrktaraðilar

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo