
Ég vil vera skrítin (I Want To Be Weird)
Brynja Dögg Friðriksdóttir
Leikstjóri
Brynja Dögg Friðriksdóttir
Framleiðandi
Heather Millard
Myndataka
Hrafn Garðarsson
Handritshöfundur
Adrienne Grierson
Kitty Von-Sometime er bresk listakona sem hefur verið búsett á Íslandi í sjö ár. Hún er hvað þekktust fyrir The Weird Girls Project, sem er röð verka eða myndbandsþátta þar sem konur eru í forgrunni. Hver þáttur er einstakur og byggist upp ákveðinni hugmyndafræði. Kitty fær hóp kvenna með sér í hvern þátt en markmið verkanna er meðal annars að styrkja sjálfstraust og líkamsímynd kvenna og hvetja þær til að sleppa framan af sér beislinu. Heimildamyndin fylgir eftir Kitty í daglegu lífi og við vinnu á verkum sínum. Konurnar eru margar í lífi Kittyar, þær veita henni innblástur og verk hennar efla þær og styrkja á ólíkan máta. Útkoman er einstök.