
Börn kvótakerfisins
4. júní
13:10
Leikstjóri
Björg Sveinbjörnsdóttir
Framleiðandi
Björg Sveinbjörnsdóttir
Tvær vinkonur eiga alræmdan jafnaldra. Kvótakerfið. Regluverk um fiskveiði sem breytti sjálfsmynd og tilveru sjávarþorpa í kringum Ísland. Nærvera óréttlætisins er sterk í þessari miðju alheims þeirra án þess að þær viti nákvæmlega hvernig. Myndin er eins og flöskuskeyti úr fortíðinni, sent seinni part dags í mars, árið 1995.