22. — 25. maí 2026
Patreksfjörður

festival parade

Skjaldborgarhátíðin

Skjaldborg ber jafna virðingu fyrir hinu smáa, stóra, fallega og flókna og sýnir úrval af bestu heimildamyndum sem framleiddar hafa verið hér á landi undanfarið ár, en sumar myndanna koma annars varla fyrir augu almennings. Efnistök heimildamyndanna sem hafa verið á dagskrá hátíðarinnar í gegn um árin hafa verið fjölbreytt en þær hafa verið allt frá örstuttum myndum upp í myndir í fullri lengd.

Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar sem sýndar eru í sem staðsett er í hjarta bæjarins.

Hátíðarpassi veitir aðgang að allri dagskrá hátíðarinnar, sjávarréttaveislu, plokkfiskboði kvenfélagsins, partýi á laugardagskvöldinu, lokakvöldi með dansiballi, í sundlaugina alla helgina og gistingu á tjaldstæðinu.

Hátíðarpassar eru seldir á heimasíðu Skjaldborgar í aðdraganda hátíðarinnar og í Skjaldborgarbíó á meðan hátíðinni stendur.

Hátíðarpassi veitir aðgang að

  • allri dagskrá hátíðarinnar
  • sjávarréttaveislu á sunnudagskvöldinu (kostar sér 4000kr)
  • plokkfiskboði kvenfélagsins á laugardagskvöldinu (kostar sér 3500kr)
  • partýi og bingói á laugardagskvöldinu (aðeins fyrir handhafa passa)
  • lokaballi, verðlaunaafhendingu og limbókeppni hátíðarinnar (kostar sér 3500 kr)
  • sundlauginni alla helgina (hver miði 1326kr)
  • tjaldstæðinu alla helgina (kostar 4039kr fyrir 3 nætur)

Styrktaraðilar

logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo
logo