
Lalli Johns
Þorfinnur Guðnason
Leikstjóri
Þorfinnur Guðnason
Tegund
Heiðursgestur
Lengd
85
Frumsýningarár
2001
Í myndinni fylgjumst við með hinum geðþekka Lalla flækjast á milli kráa, Litla Hrauns og félagsþjónustustofnanna. Sjálfur gefst hann aldrei upp og tekur öllu andstreymi með bros á vör. Enda alltaf jafn vongóður um að framtíðin beri eitthvað gott í skauti sér: „Ein jóna á dag kemur skapinu í lag.“ Myndin var tæp fjögur ár í vinnslu – en höfundur hennar fékk ávallt langt frí þegar söguhetjan þurfti að sitja af sér fyrir „eitthvað smotterí”.















