
Draumalandið
Þorfinnur Guðnason & Andri Snær Magnason
Leikstjóri
Þorfinnur Guðnason & Andri Snær Magnason
Tegund
Heiðursgestur
Framleiðandi
Sigurður Gísli Pálmason
Framleiðslufyrirtæki
Ground Control Productions
Meðframleiðandi
Hanna Björk Valsdóttir, Hrönn Kristinsdóttir, Þórir S. Sigurjónsson & Hlín Jóhannesdóttir
Stjórn Kvikmyndatöku
Þorfinnur Guðnason, Guðmundur Bjartmarsson, Hjalti Stefánsson & Bergsteinn Björgúlfsson
Klipping
Eva Lind Höskuldsdóttir
Tónlist
Valgeir Sigurðsson
Lengd
89
Frumsýningarár
2009
Draumalandið fjallar um þjóð sem er búin að koma upp öllum sínum innviðum og hefur öll tækifæri í hendi sér en ákveður að gera landið að einni stærstu málmbræðslu í heiminum. Til þess þarf að fórna einstæðri náttúru og þenja efnahagskerfið til hins ítrasta. Í aðdraganda hruns hins íslenska efnahagskerfis var farið út í stærstu framkvæmd Íslandssögunnar. Stærðarskalinn á þeim tíma var byltingarkenndur. Erlent vinnuafl var fengið til þess að byggja stærstu stíflu í Evrópu og orkuverðið var leyndarmál. Draumalandið lýsir saklausri þjóð sem dregur að sér öfl og fyrirtæki með vafasamt orðspor og hörmulega slóð eyðileggingar á bakinu.















